Lífið í Kaupmannahöfn

Evan í Baunaveldinu

02.03.2007 17:20:25 / evan

Komin með heimasíðu á barnalandi

Jæja ég er þá loksins búin að stofna heimasíðu á barnalandi, undir bumbubúi Helga og Evu eða slóðin er http://barnaland.is/barn/59275 , endilega kíkið á síðuna. Ég er búin að setja inn bumbumyndir á síðunni og fleiri eiga eftir að koma síðar. Ég er núna officially hætt með þessa síðu en ég mun skrifa í vefdagbókina á barnalandssíðunni, svo þar ættuð þið að geta lesið allt það sem er að frétta. Er að vísu ekki búin að setja inn neina færslu núna en hún kemur von bráðar. Ég kem sennilega til með að læsa síðunni einhvern tímann bráðlega svo þið sendið bara á mig email og ég sendi ykkur aðganginn.

Kveðja,

Eva bumba


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 16:39:41 / evan

Flutt í nýja íbúð og alles !

Loksins komin í samband við umheiminn......var alveg Palli einn í heiminum án netsins. Ótrúlegt hvað maður er orðin háður þessu og ég tala nú ekki um þegar maður er einn heima allann daginn og hefur nákvæmlega ekkert að gera nema bíða fæðingu prinsessunnar... :D

Við Helgi erum búin að koma okkur offsa vel fyrir í nýju fínu íbúðinni okkar og líður okkur rosalega vel. Það er svo gott að vera loksins útaf fyrir sig og njóta þess að vera bara tvö. Sambúðin gengur eins og í sögu og ég bara hreinlega get ekki verið meira hamingjusamari :).

Meðgangan gengur bara vel fyrir utan smá grindargliðnun, barnið vex vel og hreyfir sig voða mikið. Lætur sko mömmu sína alveg vita af sér, sem er mjög notalegt.

Mamma hans Helga er búin að vera í heimsókn hjá okkur yfir helgina og fer á morgun. Hún færði mér voða skemmtilega gjöf frá Bláa Lóninu, kom með læri sem við elduðum í gær.....mmmm hvað það var gott og svo auðvitað íslenskt sælgæti :). Ég er búin að þræða búðirna með henni, fórum í Fields og Fisketorvet. Hún keypti æðislega sæt föt á barnið og allt of mikið auðvitað....voða spennt amma þar á ferð ;).  Fórum svo út að borða á laugardagskvöldið á frábærum indverskum stað. En annars er þetta bara búin að vera róleg og notaleg helgi í alla staði og gaman að kynnast betur mömmu hans Helga....frábær kona þar á ferð.

Nú situr maður bara heima að blogga á meðan Helgi og mamma hans skelltu sér á Strikið...ég var ekki alveg að orka að fara líka niður í bæ eftir gott búðaráp í Fisketorvinu fyrr í dag. Pínu þreytti kallinn.

Nú í vikunni er stefnt á það að stofna barnalandssíðu þar sem ég er nú komin með netið.  Læt ykkur vita allt um það þegar hún er tilbúin. En þangað til.....

Ciao


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 15:35:08 / evan

Hmmm

Það er nú ósköp lítið af mér að frétta þessa dagana, læt mér bara leiðast í fríinu. Veit bara öngvanveginn hvað ég á af mér að gera. Bíð bara eftir að flytja.....dagarnir frekar lengi að líða sko.

Á föstudaginn fjárfestum við Helgi í barnavagni....ótrúlega flottur Brio vagn sem foreldrar Helga gáfu okkur. Bráðlega ætlum við svo að kaupa barnarúm og því tilheyrandi sem mín fjölskylda ætlar að gefa okkur. Frábært að eiga svona góða fjölskyldu sem hjálpar okkur, því ekki er það ódýrt að eignast barn svona í fyrsta skiptið :D.

Við Helgi skelltum okkur svo í giftingu hjá Heimi bróðir á laugardaginn, sem sagt borgaraleg gifting og hélt fjölskylda Jóhönnu lítið heimboð í tilefni stóra dagsins. Til hamingju enn og aftur Heimir og Jóhanna. Um kvöldið fórum við Helgi svo í afmæli til Alla, var hann að fagna því að vera kominn á fertugsaldurinn :haha:. Mjög skemmtilegt afmæli og gaman að vera svona edrú að fylgjast með fulla liðinu :haha:. Ágætis tilbreyting bara ;).

Ég vil benda á nýjan tengil hjá litlu bloggurunum. Yngsta prinsessan hún Marín Mist dóttir Selmu sys og Ingva er komin með síðu á barnalandi. Endilega kíkið á linkinn.

Jæja, ég er farin að græja mig, er að fara að hitta Actavis gellurnar Örnu og Þórdísi.

Ciao....


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 10:28:04 / evan

Gleðilegt nýtt ár lesendur góðir nær og fjær!

Þá hefur árið 2006 runnið sitt skeið og árið 2007 tekið við:!: Vona ég innilega að þið eigið eftir að eiga gott og skemmtilegt ár framundan. Eitt er víst að það verður frekar viðburðaríkt hjá mér þar sem ég fæ þá guðsgjöf að eignast lítið kríli :D. Heilsast okkur afar vel og barnið lætur sko vel finna fyrir sér......farin að gruna að barnið eigi eftir að vera einhver orkubolti :D.

Nú hef ég sko FRÉTTIR að færa, við Helgi erum komin með íbúð til leigu á stað sem er ekki á verri endanum, þ.e. á ISLANDSBRYGGE. Íbúðin er glæný og búin öllum þægindum, svo sem þvottavél, þurrkara, uppþvottavél og örbylgjuofni svo eitthvað sé nefnt. Íbúðin er á fyrstu hæð (2. hæð á íslenskum mælikvarða) og snúa svalirnar í átt að bryggjunni......sé sumarið í hyllingum núna, ekki nema ein mínúta niður á bryggju til að baða sig í sólinni og svo getum við grillað á svölunum ummmm:haha:. Helgi er extra spenntur fyrir þessu, þar sem nú einn af hans bestu vinum búa í sömu blokk......spurning hvort ég sé komin í samkeppni við Breka.....farið að læðast að mér sá grunur að Helgi eigi eftir að vera meira hjá honum en heima hjá sér :D. Við munum flytja 1.febrúar svo þeir sem vilja hjálpa okkur, ekki vera feimin að gefa ykkur fram ;). Þetta er bara meira en ég hef þorað að óska mér og frábært að fá tíma til að koma sér fyrir og undirbúa komu barnsins.........er öll svo spennt :haha:

Að öðru, þá er ég búin með prófið í sjúkdómafræði og á eitt ritgerðarpróf eftir sem ég á að gera á 48 klukkutímum 8| og eftir það þá er mín bara komin í barneignarfrí og hef allan heimsins tíma frá og með 17. janúar. Endilega droppið nú við í Köben og styttið mér stundir ;)

Hef verið að hugsa mér að stofna barnasíðu svona þegar ég er komin í frí og hætta þá með þessa síðu þar sem ég mun engan veginn nenna að halda tveimur síðum gangandi.....hef nú ekki verið mjög virk með þessa einu 8|. Set inná þá síðu kannski einhverjar bumbumyndir og svoleiðis.....frekari upplýsingar um þetta verður síðar soooo píps stay tuned.

Hey koma svo og kvitta fyrir sig.....leiðinlegt þegar enginn kommentar, þá nennir maður þessu ekki.....koma svo:!:

Evan og bumbkrílið kveðja að sinni


» 11 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 12:42:55 / evan

Kem heim á morgun :D

Þá er biðin á enda.....mæti á klakann annað kvöld og ætlar hún Svana mín að sækja mig á völlinn. Þið getið ekki trúað því hvað mig er búið að hlakka til að koma heim :haha:. Það verður frábært að hitta fjölskylduna og vini og sjá öll fallegu fallegu jólaljósin. Danir eru alveg glataðir í jólaskreytingum, mér finnst hreinlega ekkert jólalegt hérna........Danir ávallt að spara rafmagnið 8|

Gleðileg jól:!::!::!:

Hlakka til að sjá ykkur :D

Ciao,

jólabumban


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 16:15:42 / evan

Læra og læra meira í dag en í gær!

Hæ hó folks, bara rétt að láta heyra í mér.

Er búin að vera að drukkna í bókum undan farið og mun það halda áfram ja fram YFIR jólin, svo jólin verða eydd í bókalestri. Ótrúlegt fyrirkomulag hérna í Danaveldinu......þetta gjörsamlega eyðileggur jólin manns, að maður skuli ekki vera á launum við þetta ????. Ætla mér þó að reyna að hitta eitthvað fólkið mitt en það verður kannski ekki eins mikið og ég myndi vilja. Svooo það er bannað að móðgast ef ég næ ekki að hitta ykkur öll ;)

Það helsta að frétta er að pabbi minn var í heimsókn síðustu helgi. Það var kíkt í bæinn á kaffihús og pöbba, ásamt því að sjá Aquarium og jólatívolíið. Notaleg helgi í allastaði og ekkert búðarráp, ágæt tilbreyting að fá gest sem hefur engan áhuga á að shoppast :D.

Bumban stækkar og stækkar, farin að hlunkast hér um :haha:. Barnið lætur sko alveg vita af sér, það fer allt á fullt þegar ég leggst niður og ætla mér að fara að sofa. Ég þarf að láta Helga taka nýjar myndir af mér og setja hér inn svo þig getið nú séð hvað ég er feit og falleg :D. Mér datt sú vitleysa í hug um helgina að stíga á vigtina heima hjá Heimi bróður og get vægast sagt að það var ljót tala sem kom á skjáinn.....svo ég held bara áfram að éta eins og svín......verð þá bara Eva the Keiko! :haha:

Það verður víst lítið um blogg fram á jólum, kannski ein stutt færsla og reyni að skella inn nýjum myndum. Hafið það gott og njótið þess að vera til, því skemmtilegasti mánuðurinn er rétt að byrja. Kveikið á kertum og spilið jólalög og njótið hvort annars.....það ætla ég klárlega að gera :)

Jólabumbulínan kveður að sinni


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 14:28:34 / evan

Stelpurnar í heimsókn!

Frábær helgi að baki......enda er nú ekki annað hægt þegar þær Helga og Sif eiga í hlut. Stelpurnar náðu að versla allt upp í Köben þannig að þær fóru sko ekki tómhentar heim. Toddýið kom vel að notum á milli búðarekka......auðvelt að versla með þann drykk við hönd :D.

Á laugardagskvöldið skelltum við okkur út að borða með Helga, systur hans og kærasta á ástralskan stað sem heitir Reef and beef, og gæddum við okkur á kengúrukjöti og strútskjöti....mmmm fæ bara vatn í munninn við að hugsa um matinn. Held ég hafi aldrei smakkað eins gott kjöt.........á þennan stað þurfa allir klárlega að prófa:!: Eftir matinn var svo haldið á röltið til að reyna að finna einhvern stað til að drekka á, eftir nokkrar tilraunir þá fundum við pöbb á Strikinu og sátum við þar í góðu tómi við sötur (nema ég náttlega) og spjall. Stelpurnar skelltu sér svo á diskótek þegar aðrir fórum heim fullir og enn aðrir þreyttir :).

Á sunnudaginn komu Andrea og Auður til Köben að hitta okkur stelpurnar......kíktum í skemmtilegar búðir og á kaffihús, þar var auðvitað spjallað og mikið hlegið. Sárt að horfa á eftir stelpunum fara heim aftur.....strax farin að sakna þeirra. 

Jæja nú eru komnar myndir inná síðuna sem þið getið kíkt á undir "myndir-bumbumyndir". Ég verð duglegri framvegis að setja inn nýjar bumbumyndir:haha:

Ciao.... 


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 13:26:41 / evan

Smá fréttainnskot!

Í gær fórum við í 20 vikna sónar og allt koma ljómandi vel út úr sónarnum. Litla krílið okkar var voðalega rólegt og saug bara puttann sinn í rólegheitunum á meðan á skoðuninni stóð......við erum að deyja úr spenningi að fá krílið í hendurnar. Mér var seinkað um eina viku þannig að núna er ég sett 4.apríl. Ég er farin að finna vel fyrir spörkum og Helgi náði að finna aðeins í vikunni.......oft mikið fjör á kvöldin :). Ótrúlega skrítin tilfinning að finna fyrir, að það sé lítið líf innan í manni.....alveg yndisleg tilfinning :D.

Það fara alveg að koma myndir af bumbunni....promise :) 

Nú styttist óðum að þær Helga og Sif koma í heimsókn til mín.....ekki nema 5 dagar og believe me, það er sko talið niður. Er hrikalega spennt að fá þær til mín og skilst mér að litla shop-aholic hún Sif ætli að tapa sér búðunum......ef vart verður um dökkhærðan stormsveip á götum kaupmannahafna þá er það líklegast hún Sif að kaupa upp flottu fötin....so watch out píps :haha:

Ha' god weekend.

Later......


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 13:43:19 / evan

HVER STAL HJÓLINU MÍNU? :(

......já hver var það???? Einhver óprúttinn náungi stal hjólinu mínu í skjóli næturs, hjólið var horfið í morgun, svo nú á ég ekkert hjól.......hvað geri ég nú :cry:

Fór í fyrsta skiptið til ljósunnar minnar á fimmtudaginn. Hún er íslensk sem er alveg frábært. Voða gott að geta sagt allt án misskilnings og skilið allt sem sagt er við mann. Allt kom gott út úr skoðuninni og hjartslátturinn í barninu alveg tipp topp :). Ég mun ekki hitta ljósuna aftur fyrr en í byrjun janúar og mun ekki hitta hana nema svona 5 sinnum á meðgöngunni. Eitthvað minna en heima, en í millitíðinni hitti ég lækninn minn og er svo líka að fara í 20 vikna sónar í byrjun nóvember, svo það er nú í lagi ;).   

Annars er voðalega lítið að frétta, við Helgi kíktum í afmælið til Rúnars og Daða á föstudaginn og var þar margt um manninn og voða mikið fjör. Stoppuðum að vísu bara stutt þar sem Helgi var að fara að vinna daginn eftir.

Ótrúlegt en satt þá er ég búin að vera dugleg að læra í fríinu, kláraði að lesa allt sem ég var ekki búin að lesa í sjúkdómafræði, sem er nú btw ekkert lítið les efni. Þetta getur maður :haha:.

Jæja best að reyna að finna uppá einhverju að gera, alveg komin með nóg af þessari afslöppun.

Síðar......8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 17:22:01 / evan

Efterårsferie!

Nú er ég loksins komin í haustfrí, ó svooooo virkilega kærkomið. Þarf fullt að læra í fríinu þar sem að ég er nú ekkert búin að vera súper aktív í þeim efnum. Vil ég kenna mikilli þreytu og hausverki um :).

Fór til læknis í vikunni því ég hélt að það væri kannski blóðþrýstingurinn eða lítið járn í blóði sem orsakaði þessa hausverki en svo var bara allt í þessu fína nema mikil vöðvabólga. Verð að fara að drífa mig í jóga eða eitthvað til að liðka á vöðvunum......ekki að nenna að hafa hausverk alla daga.

Verð að segja ykkur frá einum mjög svo skemmtilegum hormónadegi. Fyrir svona þrem dögum tók bumban allt í einu vaxtarkipp, nú sést að ég er ólétt :haha:. Búin að bíða lengi eftir því, en því fylgir smá vesen..........buxurnar mínar passa ekki lengur:!:. Jæja svo sagði ein stelpa mér í bekknum frá einni óléttubúð og lét ekki segja mér tvisvar frá henni. Skellti mér í búðina og vitið menn, ekkert minna til en 28 í buxum og kjólar, bolir og fl. allt allt of stórt. Frááááábært!!!!!!! Er ekki gert ráð fyrir að sumar óléttarkonur eru bara litlar og grannar???? Jæja lét þetta nú ekki slá mig út af laginu og skellti mér í Fredriksbergcenter í H & M og fleiri búðir. Sama sagan þar, ekkert minna en Medium.....hér var farið að þykkna allverulega í minni :evil:. Ein henti mér út, skellti mér á hjólið mitt að berjast við tárin og brunaði heim, þar sem ég lá bara heima og grenjaði eins og 5 ára krakki. Dagurinn gjörsamlega ónýtur og engan veginn hægt að hætta að gráta.....Alveg eðlilegt.  Hehe hlæ að þessu núna, þetta er nú ekki líkt mér, jú það að verða pirruð en kannski ekki fara að grenja :D.

Á morgun er bumbulínan hún Andrea að koma í heimsókn til mín. Guð hvað mig hlakkar til. Mig grunar að mikið verði talað um bumbur og hormóna :). Andrea mín ætlar svo að hendast með mér í bæinn og gera aðra tilraun í óléttufataleit. Vonum bara að það finnist eitthvað á mig svo að Drean þurfi nú ekki horfa á mig hendast í götuna og grenja :haha:.

Í kvöld ætlum við Helgi kannski að kíkja niður í bæ að hitta Alla, Sibbu og Einar. Mikið um að vera þar sem það er kulturnat í kvöld. Gaman að kíkja og sjá mannlífið. Morgundagurinn verður tileinkaður Andreu og eigum við eflaust eitthvað eftir að bralla. Svo á sunnudaginn ætlum við Helgi að skella okkur í Halloween tívolíið.......úúú scary :klikk:

Eigið góða helgi.

See ya,

SEB


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 13:46:13 / evan

Nú er ýmislegt að frétta :)

Til að byrja með þá eignaðist ég litla frænku aðfaranótt fimmtudags. Selma systir og Ingvi eignuðust þriðja erfingjann. Hún er algjör dúlla með mikið svart hár og bollukinnar....sýnist hún líkjast mikið bróður sínum nema það að hún er dökkhærð:D

 Nú er ég flutt í litlu íbúðina mína og er svona rólega að koma mér fyrir. Mig vantar líka ýmislegt svo ég fer eina og eina ferð í búðirnar til að kaupa það sem vantar. Hér er maður nefnilega ekki með bíl sem hægt er að hlaða í 8|. Sem væri nú voða notalegt að hafa en hér er svosem allt í göngufjarlægð svo ég kvarta nú ekki mikið.

Svo kemur fréttin, ef að þið hafið ekki nú þegar frétt það. Ég og Helgi eigum sem sagt von á barni og er ég komin vel á 15 viku. Ég er bara mjög hress, smá þreyta og hausverkur inná milli en annars bara hress. Nú er ég bara að bíða eftir að fá einhverja kúlu að ráði.........sýnist bara eins og ég sé farin að éta einum of mikið...sem að er nú að vísu kannski tilfellið :haha: en ég reyni að missa ekki algjörlega stjórn á þessu, því eitt er víst að ég ætla ekki enda eins og búrhvalur :haha:

Jæja best að fara að hafa sig til, við Helgi erum að fara í mat til Jónasar og Gúrý í kvöld, í steinasteik mmmmm :). Hafið það gott um helgina.......

Evan over and out


» 17 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 17:15:01 / evan

Líður að flutningum!!!

Jæja þá er komið að því að ég fari að flytja og mun það eiga sér stað nú á sunnudaginn.....vííí :). Loksins loksins, hlakka ótrúlega til að flytja í mína litlu íbúð.

.........en þar með er ekki öll sagan sögð folks. Fyrir það fyrsta þá hélt ég að ég fengi íbúðina 15 sept þar sem ég byrjaði að borga af henni frá og með þeim degi..........eeeeeen nei þá átti eftir að mála og gera og græja svo að ég fékk ekki lyklana fyrr en í dag. Ég og Helgi héldum svo voða spennt í hjólatúr til að kíkja á íbúðina í dag, en þvílíkur sóðaskapur sem mætti okkur:!::!::!:. Kvikindið sem var í íbúðinni hefur verið einn sá mesti sóði sem sögur fara af, íbúðin er hreint og beint ógeðslega skítug, þannig að ég þarf að gjöra svo vel að fara í fyrramálið og þrífa allt hátt og lágt og ekki nóg með það þá er EKKI einu sinni BÚIÐ AÐ MÁLA helv... íbúðina........arrrrrrrrrg, ég er vægast sagt pirruð :evil:. Og ég sem átti ekki að fá hana strax því það þyrfti að mála......og afhverju er ekki búið að því þá 8|. Ég ætla samt að flytja dótið mitt á sunnudaginn þar sem ég er búin að fá bíl, þannig að þeir þarna á skrifstofunni verða bara að redda þessu og mála íbúðina med det samme á mánudaginn:!: Það er svo hrikalega týpískt fyrir mig að lenda í svona veseni....skil ekki afhverju þetta kemur mér alltaf aftur á óvart :haha:. Þegar allt verður orðið tipp topp þá á sko eftir að vera kósý og sætt hjá mér, því get ég lofað ykkur :haha:

Hmmm hvað er annað að frétta annars....... Það er bara búið að vera voðalega rólegt hjá mér og á fullu að lesa........skólinn sér mér alveg fyrir nægum verkefnum..... munnlegt próf á mánudaginn sem ég ætla mér náttúrulega að rúlla upp :haha:.

Hausinn á mér er alveg tómur núna, held barasta að það sé eiginlega ekkert að frétta annað af mér. Kem með aðra færslu fljótlega sem verður vonandi meira upplífgandi......varð bara aðeins að fá að tjá mig um "hita mál" dagsins :haha:.

Hafið það gott um helgina og þangað til næst........

Stay black8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 14:09:18 / evan

Back to DK!!!

Ótrúlegt en satt þá er ég sest fyrir framan tölvuna að blogga.......á eitthvað voðalega erfitt með það þessa dagana 8|. Enginn vill leika við mig núna svo hvað er þá betra en að blogga :lol:

Það er bara ýmislegt sem mig langar að segja ykkur. Í dag byrjaði t.d. skólinn og leggst hann bara mjög vel í mig.  Hef það á tilfinningunni að þessi önn verður mjög strembin....ekkert nema bara gott af smá challence, ekki satt?!?!

Síðan ég kom hef ég dvalið hjá Helga og hefur þessi stutta sambúð bara gengið snuðrulaust :haha:. En svo á morgun mun ég flytja aftur yfir á Leifsgötuna í hálfan mánuð, þar sem ég er komin með íbúð á kollegi í hjarta bæjarins eða nánar tiltekið rétt við Istedgade.....get ekki beðið:!: Það verður svooooo gaman að gera sér lítið heimili :D

Á sunnudaginn síðasta átti ég afmæli og gaf Helgi mér æðislegan homie íþróttagalla.....ég var víst eitthvað búin að minnast á það að ég ætti ekkert svoleiðis svo þessi elska gaf mér galla. Hann bauð mér svo út að borða á hinum fræga stað Spiseloppen í Christianíu. Æðislegur veitingarstaður og frábær matur eins og allir voru búnir að segja. Mig hefur langað að fara þarna síðan ég kom út, allir alltaf að tala um þennan stað. Mæli eindregið með þessum stað ef þið komið til Köben.  

Ég vaknaði við svona skemmtilegt sms......Ingunn mín að segja mér að hún sé að flytja til Köben þar sem búið er að selja Hannes til Brönby.......án gríns þá var ég með bros allann hringinn í gærdag......það verður dejligt að fá stelpuna

Eigið góða helgi.......


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 14:58:09 / evan

Verslunarmannahelgin að bresta á!

Ótrúlegt en satt þá er veslunarmannahelgin á næsta leiti........vá hvað tíminn líður hratt, sumarið næstum búið og ég að fara út aftur.......ég er svoleiðis aldeilis guðsfruktug yfir þessu bara8|

......en hvað sem því líður þá ætla ég mér að hendast norður yfir heiðar með pabba og konunni hans til Selmu sys og fjölskyldu yfir helgina.........oh það verður ljúft að koma í sveitasæluna og slappa bara af og knúsa litlu demantana mína. Á nú eftir að kíkja smá í heimsóknir og hvað veit maður en að kíkt verði á Sálina í Sjallanum, aldrei að vita :haha:

Síðustu daga er ég búin að vera umkringd vinkonum mínum sem eru á fullu að planleggja, gera og græja fyrir þjóðhátíð í eyjum. Búnar að láta prenta á peysur og á þeim stendur "á draslinu...." :haha:. Fyrir þá sem vita ekki hvað það þýðir, þá þýðir það að vera mjög drukkinn :lol:........ég loka nú bara eyrunum fyrir þessum plönum þeirra.........því mikil ósköp langar mig með í fjörið á eyjunni skemmtilegu........Skemmtið ykkur ógó vel elskurnar........

Vona að þið öll eigið eftir að eiga skemmtilega og góða helgi........keyrið varlega því oft er mikið um slys þessa helgi.....

Evan


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 15:21:20 / evan

Helgin að bresta á!!

Eitthvað verður þessi helgi með rólegra mótinu. Kósý kvöld í kvöld að horfa á One tree hill með stelpunum, og svo verður eflaust bara farið snemma að sofa í hausinn á sér.

Á morgun á svo að vera sól....æði pæði, svo sólin verður líklega eitthvað sleikt :haha:. Núna er maður bara dottin inn í aukavinnu....kjellingin helt bissí ;). Erum við allar vinkonurnar að fara að vinna í brúðkaupi á laugardagskvöldið.....hlakka bara til enda vinnuhópurinn ekki af verri endanum  :lol:.

Ja fleira var það nú víst ekki í bili.

Eigið góða helgi

Kv.

Eva  


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3